Tælandsferð 2007

Friday, February 02, 2007

Staða mála á WC pappírs sölu

Ég ákað að búa til smá bréf um stöðu klósettpappírsmála. Þetta verður bæði birt á heimasíðunni (taeland07.blogspot.com) og töflunni niðrí Öskju.
Ég talaði við WC pappírssölumanninn í gær, hann Garðar frá Papco. Við ræddum um söluna á klósettpappírnum og hvernig við ættum að haga henni. Samkvæmt honum er lítið mál að fa´2 sendingar af pappírnum, jafnvel 3 ef áhuginn er mikill (við skulum samt bara miða við 2). Hann lagði til, sem ég var sammála, að besta leiðin til að afhenda klósettpappírinn væri að hann yrði allur sendur (frítt) á einn stað,á fyrirfram ákveðnig dags- og tímasetningu. Þar myndu þeir sem ætla að kaupa pappír, hittast og hver taka sinn hluta. Jafnframt gefur hann okkur þá nokkra daga (allt að 10) til að borga pappírinn. Best væri að ég myndi sjá um að stofna reikning, rukka mannskapinn og borga Papco síðan í einni greiðslu. Þannig að ef þið ætlið að selja mikið, en eigið ekki mikinn pening í augnablikinu, þá er betra að skipta sendingunni niður í tvennt.

Nú hvenær eigum við að panta og hvenær eigum við að taka á móti sendingunni? Það er góð spurning. Við þurfum að halda fund um ferðina í næstu viku. Ég legg til að við ákveðum þá endanalega með pappírinn, móttökuna ofl. Og ég panta daginn eftir. Ef þið eruð með einhverjar uppástungur eða tillögur við þetta, ekki hika við að senda mér tölvupóst (saes1@hi.is) eða kommentera á heimasíðunna, það er svo gott að fá umræðu um þessa hluti.

4 Comments:

At 9:54 PM, Anonymous Anonymous said...

á að panta pappírinn á mið?

 
At 10:09 AM, Anonymous Anonymous said...

blaa blaa

 
At 10:11 AM, Anonymous Anonymous said...

Jæja...þá er komment kerfið komið í lag..

 
At 11:55 AM, Anonymous Anonymous said...

hvenar þarf að borga pappírinn? og já... það er ekki hægt að kommenta á hitt ;)

 

Post a Comment

<< Home