Tælandsferð 2007

Tuesday, October 03, 2006

Góður fundur í gær

Við utanfarar héldum þennan fína fund í gær. Segja má að öll megin markmið fundarins hafi náðst,þ.e. að búa til nefnd, stinga upp á fjáröflunarleiðum og auðvitað að ákveða hvert ferðinni sé heitið. Eins og nafn síðunnar gefur til kynna var ákveðið að fara til Tælands.

Ég hélt saman smá skrá yfir þær hugmyndir sem komu fram á fundinum um fjáröflunarleiðir. Þeir sem hafa gaman af tölum geta einnig skoðað úrslit kosinga

Jafnframt var stjórn ferðarinnar ávkeðin. En hana skipa: Ég (saes1@hi.is), Dáni(hhh5@hi.is), Hrönn (hre2@hi.is), Marinó (mfp1@hi.is), Siggi(srg2@hi.is) og Vigdís (vis2@hi.is. Stjórnin mun hittast á næstu dögum og skipuleggja ýmsa hluti nánar.

Enn og aftur góður fundur og gaman hvað fólk var með góðar hugmyndir og tók góðan þátt í umræðum. Sendur verður út póstur til að auglýsa næsta fund sem verður vonandi fljótlega. En kommentið endilega á síðuna og allar hugmyndir sem varða ferðina eða skipulagningu eru velkomnar. Kjörið skilja þær eftir sem komment eða senda stjórnarmeðlimum þær í tölvupósti.

1 Comments:

At 12:51 AM, Blogger marino said...

Gott mál! Gerum nú gott úr þessu! =)

 

Post a Comment

<< Home