Tælandsferð 2007

Monday, February 19, 2007

Fjáraflanir... sokkar og annað

Sawadee ka

Hér eru sokkar og annað sem við ætlum að byrja að selja. Næsta mánudag (26.feb) verða allir að vera búnir að leggja inn sína endanlegu pöntun. Skoðið málið. Hrönn veitir frekari upplýsingar.

Slóð þessi hefur að geyma skrár varðandi fjáröflunina og skellti ég inn að ganni betri útgáfu af staðfestingagjaldinu.
http://hi.is/~hre2/namsferd_til_tailands/

Endilega skoðið vikurprjon.is þar eru betri upplýsingar um sokkana.

Sawadee

Hrönn

Wednesday, February 07, 2007

WC!!!. Móttaka mánudagskvöldið 11.feb

Ég stefni að því að panta klósettpappírinn á morgun og láta hann koma á mánudagskvöld í Öskju. Þá hefði ég hugsað mér að allir, sem pöntuðu munu koma og ná í sinn skammt. Mikilvægt er að allir komi og nái í pappírinn á mánudagskvöldið, því ekki viljum við láta pappírinn daga uppi niðrí Öskju. Ef einhver kemst ekki, þá verður hann að láta einhvern af sínum félögum vita sem kemur(sem getur tekið pappírinn) eða mig (saes1@hi.is). Eitt enn sem er mikilvægt er hversu mikinn pappír viljið þið fá í þessari sendingu. Eins og stóð í síðustu WC færslu, þá er stefnt að því að fá tvær sendingar. T.d. ég persónulega ætla að fá 50 pakkningar í heild, en núna ætla ég bara að láta senda á mig 25. Þannig að látið mig vita ef þið ætlið að skipta sendingunni, miðað við það sem stendur á listanum niðrí Öskju, niður í 2. Þið getið gert það í kommentum (sem NB eru komin í lag), í email (saes1@hi.is) eða síma:899-5087. Enn að öllu jöfnu verður klósettpappírinn sendur í Öskju á mánudagskvöldið næstkomandi, 11.feb.

Friday, February 02, 2007

Staða mála á WC pappírs sölu

Ég ákað að búa til smá bréf um stöðu klósettpappírsmála. Þetta verður bæði birt á heimasíðunni (taeland07.blogspot.com) og töflunni niðrí Öskju.
Ég talaði við WC pappírssölumanninn í gær, hann Garðar frá Papco. Við ræddum um söluna á klósettpappírnum og hvernig við ættum að haga henni. Samkvæmt honum er lítið mál að fa´2 sendingar af pappírnum, jafnvel 3 ef áhuginn er mikill (við skulum samt bara miða við 2). Hann lagði til, sem ég var sammála, að besta leiðin til að afhenda klósettpappírinn væri að hann yrði allur sendur (frítt) á einn stað,á fyrirfram ákveðnig dags- og tímasetningu. Þar myndu þeir sem ætla að kaupa pappír, hittast og hver taka sinn hluta. Jafnframt gefur hann okkur þá nokkra daga (allt að 10) til að borga pappírinn. Best væri að ég myndi sjá um að stofna reikning, rukka mannskapinn og borga Papco síðan í einni greiðslu. Þannig að ef þið ætlið að selja mikið, en eigið ekki mikinn pening í augnablikinu, þá er betra að skipta sendingunni niður í tvennt.

Nú hvenær eigum við að panta og hvenær eigum við að taka á móti sendingunni? Það er góð spurning. Við þurfum að halda fund um ferðina í næstu viku. Ég legg til að við ákveðum þá endanalega með pappírinn, móttökuna ofl. Og ég panta daginn eftir. Ef þið eruð með einhverjar uppástungur eða tillögur við þetta, ekki hika við að senda mér tölvupóst (saes1@hi.is) eða kommentera á heimasíðunna, það er svo gott að fá umræðu um þessa hluti.