WC pappír og gjafavörur
Þegar var að hringja í fyrirtæki og spurja um vörur til að selja, fékk ég nokkur tilboð um kaup á ýmsum vörum. Hér fyrir neðan eru tilboð frá tveimur fyrirtækjum, Servida og Ó.Johnson og Kaaber. Eins og ég sagði á tilkynningunni á töflunni, þá mæli ég eindregið með því að við kaupum klósettpappírinn af Papco hf, því þar er hann ódýrari og þar fáum við jafnvel magnafslátt.
Varðandi WC pappírslistann á töflunni í Öskju, þá var talað um á síðasta fundi að þeir sem hefðu áhuga á því að kaupa myndu skrá sig á listann. Síðan yrði pantað eftir næstu mánaðarmót þegar fólk ætti pening. Þannig að listinn núna er alls ekkert bindandi strax og ekki verður WC pappírinn verður ekki pantaður fyrr en eftir mánaðarmót.
En allavegana, tilboðin á vörunum. Í fyrsta lagi Ó.Johnson og Kaaber . Eins og þið sjáið eru þarna tilboð á ýmsum vörum t.d. ljósa perum, kaffi (möluðu og baunum) ofl.
Hitt tilboðið er frá fyrirtæki sem heitir Servida. Það var ekki alveg eins flott skjal, þó eru allar nauðsynlegar upplýsingar þarna.
Ég persónulega ætla ekki að kaupa neitt af þessum listum en ef það eru margir sem ætla að kaupa af þeim, þá er hægt að sameinast í kaupum í von um að fá magnafslátt. En commentið endilega þeir sem hafa áhuga og síðan sjáum við til hvað við gerum.
Bæti hérna inn slóð á klósett pappír blaðið sem hangir á töflunni niðrí Öskju
